Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 1/2022 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 1/2022

Fimmtudaginn 31. mars 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 2. janúar 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. desember 2021, vegna bótaréttar hennar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 7. janúar 2021 og var umsókn hennar samþykkt þann 18. mars 2021 með 95% bótarétti. Þann 30. nóvember 2021 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar um að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 8. desember 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á umræddu starfi. Skýringar bárust frá kæranda 9. desember 2021. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. desember 2021, var kæranda tilkynnt að skýringar hennar hefðu verið teknar gildar.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 2. janúar 2022. Með bréfi, dags. 7. janúar 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 11. febrúar 2022, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að hin kærða ákvörðun væri að öllu leyti ívilnandi í garð kæranda og því yrði ekki séð að ágreiningur væri uppi í málinu eða að kærandi hefði lögvarða hagsmuni af endurskoðun ákvörðunarinnar. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. febrúar 2022, var greinargerðin kynnt kæranda. Athugasemdir bárust ekki. 

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. desember 2021, um að taka gildar skýringar kæranda vegna höfnunar á atvinnutilboði hjá B.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Þar sem ekki kom til viðurlaga á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 verður ekki séð að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum